Archive for July, 2005

Jesú í Metró

Friday, July 29th, 2005

Já ég lagðist næstum á skeljarnar áðan í Metro. Þar tók bara á móti okkur Jesú í hvítum klæðum með skegg niður á bringu og allt!! Og 2 lærisveinar með honum – já ekki lærissneiðar! Vissi ekki að Jesú fylgdist svona vel með nýtískusamgöngum en það er gott að hann geri það þó biblían og margar af þessum ofsatrúm haldi fast í gamlar hefðir sem eru úr sér gengnar… en ég ætla nú ekki að stofna til heitra trúarumræðna hérna :)
Langaði bara að deila þessari reynslu með ykkur – Var mikið að spá og spögulera hvort ég ætti að taka upp myndavél og smella einni af honum en ég þorði því ekki. Vildi ekki láta Jesú leggja bölvun á mig c”,) híhíhíhíhí…

En ég var að fatta það núna í þessum töluðu orðum að í dag er föstudagur. Og það er komin verslunarmannahelgi! Ég var að skoða eitthvað á netinu og hef verið að skoða blogg og svona og ég verð nú að játa að ég fékk smá fiðring eins og þegar maður er heima þó maður ætli ekki að gera neitt – það er alltaf svona öðruvísi andrúmsloft og mér fannst ég upplifa það alveg hingað!! Mín verslunarmannahelgi verður sko tekin með stæl ójá ójá U2 ef það skyldi hafa farið fram hjá ykkur híhíhíhí… Nóg um það Birkir kemur í kvöld og sama vél inniheldur líka Gunnar Inga, Þorbjörgu og dætur. Verður fjör á flugvellinum :) Jeiiiiiii hlökkum mikið til að sjá þau öll.

HHHHoooohhh það var þruma úti núna – þannig að það er sennilega útlit fyrir hitaskúr eftir augnalok og vonandi hressilegt þrumuveður :)
Jæja 2 blogg í dag bæta upp bloggleysið í gær!!

Hjónabönd fræga fólksins

Friday, July 29th, 2005

Hæ hæ hæ allir saman!

Gunnagrill var etið í gær í góðum félagsskap – í kvöld verður það Racklett hjá Gunna. Svo bara hendumst við útá flugvöll og myndum stóra og góða móttökunefnd á Kastrup. Það verður flott.
Gunni er annars alltaf að skamma okkur! Við drekkum víst ekki nógu mikinn bjór í landi Tuborg og Carlsberg!!!! :) Eins gott að við bætum okkur…. úff…. c”,) Annars kom Kúturinn með eitthvað Opalstaup frá Íslandi – hroðalega sætt og alveg hrikalega gott! Manni sveið alveg enda á milli við smá smakk á því! Eins og með rauðan opal.

Yfir í annað og merkilegra; núna í dag eru aðeins 2 dagar í U2 og 1 vika í Svíþjóð! Jibbí. Sem þýðir að það styttist í að við förum að gera eitthvað aðeins merkilegra og skynsamlegra en að hanga og drepa tímann… Vona bara svo sannarlega að þetta gangi allt eðlilegan vanagang en ekki einhverjar óvæntar uppákomur eða vesen! Bara að við verðum bæði komin í vinnu og íbúð helst vel fyrir afmælið mitt – þá er allt í góðu.

En svo ég útskýri titil færslunnar þá var ég að lesa www.mbl.is og þar kemur fram að Zellweger sé við það að fara að skilja og að hún viðurkenni það að hún hafi nú kannski ekki alveg þekkt eiginmann sinn þegar þau giftu sig! Nota bene þau voru búin að vera saman í heila 4 mánuði þegar þau giftu sig! Er ekki í lagi með fólk????? Hvaða BAUNIR eru í hausnum á þessu fræga fólki. Amk er þetta fólk ekki með sömu baunategund og ég! Það er alveg á hreinu. Ótrúlegt – hvernig væri að það myndu bara svona 1-2 brenna sig á þessu og hinir myndu læra af reynslunni!! Neiiiiiii ….. ohhhh ég ætla nú ekki að fara að láta þetta pirra mig – pirr pirr :)

Adios HD

4 dagar í JúTú

Wednesday, July 27th, 2005

Þetta er allt að gerast eins og annar hver maður segir á Íslandi! (amk þegar ég var þar síðast!) U2 á sunnudaginn maður minn. Þegar þeim áfanga er lokið þá er bara næsta skref að fara að drífa sig í að pakka og þrífa og koma okkur út í lest! Eða svoleiðis!

En já ég tók meðvitaða ákvörðun í gær að blogga EKKI! :) láta líta út fyrir að ég eigi eitthvað líf… huhummm! Eða svoleiðis já. Fór út í H&M með Vísað mitt sem hefur legið í dvala í…. nokkuð marga mánuði og straujaði “feita summu” á það með tilheyrandi biðröð á eftir mér!
Ég sem sagt sendi Lalla í mótorhjólabúð þar sem hann ætlaði að fara að skoða og máta hjálma á meðan ég fór eins og stormsveipur um H&M kids á Kultorvet (eða reyndar rétt fyrir neðan) Ég varð næstum að ráða mér auka starfsmann til að hjálpa mér að bera og gefa mér sína skoðun á málinu! En ég sem sagt byrjaði á að kaupa á systur mína – fulllllllllt. Það var ótrúlega gaman! Hefði alveg getað haldið áfram ef ég hefði bara ekki þurft að leyfa bræðrum okkar að njóta líka! Fékk að geyma dótið sem ég hafði valið á hana á afgreiðsluborðinu meðan ég færði mig í hinn enda búðarinnar – strákadeildina – og lét greipar sópa þar! Það var heldur alls ekki slæmt. Þegar ég var AFTUR komin með fullar hendur og átti enn eftir að versla á Árna Hlyn og smá á Tómas Snæ þá ákvað ég að nú væri nóg komið í bili – þær myndu ábyggilega neita að afgreiða mig með meira :D og sækja kallana í hvítu sloppunum til að skella mér á Geðdeild á Rikshospitalet (sem er reyndar í næsta húsi við heimilið okkar þessa dagana – uuuuu kannski er þetta geðdeild!!!) Jæja nóg um það. Ég sem sagt verslaði í þetta skiptið fyrir 2520.- dkk. Ekki slæmt og kom út með risastóran og nýþungan poka! Birkir heppinn að fá að ferja þetta heim.
Jæja í dag var svo haldið í Fisketorvet að klára innkaupin. Ekki gat ég látið aftur sjá mig í sömu búð með sama vísakortið :) nema kannski ef ég væri með hárkollu!! :Þ Þar lét ég greipar sópa – sendi Lalla í sjoppu til að kaupa sér … hvað annað en mótorhjólablað til að lesa á meðan ég var að versla. Hann sagði mér svo að hitta sig bara niðri hjá MacDonalds – þar ætlaði hann að sitja í rólegheitunum með blaðið í annarri og Cola í hinni!
Þegar ég var búin að ganga um H&M og kaupa allt sem ég þurfti til viðbótar – og auðvitað skjóta einum buxum handa mér og einum bol með (hey buxurnar kostuðu bara 54 dkk =600kr ísl) þá tölti ég niður að MacDonalds að hitta Lalla sem var þá nýsestur niður og varla farinn að lesa blaðið. Já maður er ekkert lengi að þessu ha!
Svo bara erum við heima núna í rólegheitunum og Lalli fær loksins frið til að lesa blaðið sitt híhíhíhíhíhí.

En ég er sem sagt búin að redda mömmu minni nokkrum klukkutímum inn í stundaskránna hennar. Hún þarf ekki að eyða jafn miklum tíma og vonandi ekki peningum heldur í að versla skólaföt á börnin. Allir græða eins og áður sagði.
Nema Vísakortið mitt – ég held það fái harðsperrur af þessum “stóru straujum”. Það hefur legið í dvala allan þennan tíma og er svo látið taka 176 kg í bekkpressu 2 daga í röð! En nú ætti að vera góð hvíld framundan.

Farvel HD

H&M útsölur

Monday, July 25th, 2005

JEBB það eru rosa útsölur útum allt í Köben og ég hef ekki aur með gati til að eyða í þær og þó ég hefði það þá þyrfti ég að borga einhverjum heimilislausum að koma með okkur til Svíþjóðar til að hjálpa okkur að bera töskur :D Jebb við komumstum ekki með eitt sandkorn í viðbót með okkur!
En ég var nú að ræða við hana mömmu mína og við komum okkur saman um að ég gæti kannski farið að eyða peningunum hennar í H&M og þar með báðar verið að græða tíma eiginlega. Hún hefur nóg að gera í standsetningu hússins, að fara að pakka niður fyrir sumarbústaðarferð og undirbúa vinnuna sem tekur við í beinu framhaldi! Svo ekki sé minnst á flutningana sem eru framundan! Þannig að ég get notað næstu daga í að versla en ekki BARA hangsa :) jeiiiiii jibbí hvað ég hlakka til híhíhíhíhíhíhíhí… Málin reddast alltaf :)

Í dag er bara ekta íslensk súld – sem er ágætt…. Við erum búin að fá sólina! :) jebb ég er ótrúlega nægjusöm :) og við bæði erum alveg sátt :) þyrftum að fara aðeins meira út að hjóla en það er aukaatriði.
Svo eru nú bara 6 dagar í U2 – vá hvað ég hlakka til! Það verður geggjað! Og svo bara 10 dagar þangað til við flytjum til Svíþjóðar! Ekki leiðinlegt það heldur! Og þá vonandi fara hjólin loxins að snúast!

Jæja bless í bili.
Knús HD

Batman begins

Sunday, July 24th, 2005

Það er nú ekki oft sem ég fæ munnræpu og tala rosa mikið – því er eiginlega þveröfugt farið – jú ég get náttúrulega misst mig eins og flestir, en já það gerist ekkert oft… en hérna á slepjunni virðist ég aldeilis getað amk skrifað :)

Allavega ætla að reyna að hafa þetta í styttra laginu :)
Fórum með Gunna litla á Batman Begins í gær.. Hún er bara alveg þrælfín – ég var svona að spá hvort ég ætti að leyfa strákunum að fara einum í bíó… en ég sé ekkert eftir að hafa farið – við skemmtum okkur bara alveg þrusuvel.

Fórum að borða fyrst – kínverskan – jebb lét plata mig, það var ágætt! Er ekkert æst að fara strax aftur – en þetta var fínt. Fórum svo í Canal tours sem er sigling frá Nyhavn og framhjá Den lille havfrue, Christianshavn og fleira sjá myndir.

Ha´de godt i dag allesammen. Sunnudagskveðjur HD