Í köben köben hérna útí köbenhavn – í kóngsins kóngsins kóngsins köbenhavn – dúddúdúrúdúrú dúrú dúrú….
jebb þegar við löbbuðum framhjá tívolí í gær og ég sá auglýst árskort í tívolí á 190 kall (danskar auðvitað) þá átti ég bágt með að labba bara framhjá – en ég lét það samt vera NÚNA því við vorum að fara út til Roskilde að tjalda (að við héldum), svo við stukkum framhjá í þetta sinnið og fórum á Hovedbanen í leit að réttri lest. Það gekk að sjálfsögðu vel og við komumst í sól og blíðu á festivalsvæðið – reyndar okkur til ánægju og lífsauka þá var gola þannig að við erum ekki ALVEG að kafna.
Fyrstu myndirnar frá DK líta dagsins ljós um leið og tölvufræðingurinn er búinn að svindla sér framhjá kerfinu hérna með að skrá tölvurnar okkar inn á netið svo ég geti sett myndirnar inn (er í Steinunnar tölvu núna
)
Annars er víst kominn mánudagur og það þýðir að við þurfum að skrá okkur inn í landið – fara í okkar kommúnu og vesenast! ÆÐI :/ eða ekki…. Við þurfum að fá kennitölu til að fá símanúmer þannig að númerin bíða… Fáum sennilega númerið hennar Steinunnar þegar hún fer heim á morgun (þriðjudag) svo þá erum við komin með DK númer
númerið hennar er +45 61 67 64 16 sem sagt eftir þriðjudag er hægt að ná í okkur í það númer. okí?
Svo ég gleymi því ekki þá leist okkur ofsalega vel á Roskilde festival og hlökkum mikið til að mæta á svæðið á þriðjudagskveld eða miðvikudag eldhress – vonandi bara að það rigni ekki mikið á okkur – Þverneita að fá vott af því sem gerðist á Glastonbury.
Jæja best að gera eitthvað af viti… bæ í bili HD
Archive for June, 2005
Dagur 2
Monday, June 27th, 2005Kóngsins Köben
Sunday, June 26th, 2005Þá er maður fluttur… enn einu x á árinu! Og nú til Danmerkur.
Ísland kvaddi með tárum…. grenjandi rigning – og Danaveldi heilsaði með sól og blíðu. Allt eins og það á að vera :Þ Steinunn Margrét tók á móti okkur með allar töskurnar okkar og 15 kílóin í yfirvigt. Okkur veitti ekkert af þarna xtra öxl til að bera þetta allt – jisúss…. Svo var bara heljarinnar partý sem tók á móti okkur, fjöldasöngur og allt þegar við skriðum lox inn á kollegiið. Það var eitt af 3 kollegi- partýum ársins hérna núna og var líka þegar við vorum síðast. Er verið að segja okkur eitthvað! Reyndar vorum við hjú of sybbin og eftir okkur eftir allt sem á undan hefur gengið svo við bara vorum löt og fórum fljótlega í bælið – ég rétt kíkti upp en Lalli bara skoðaði nýja símann sinn á meðan
Steinunn var aðeins lengur að dilla rassinum.
Stefnan í dag er að læra á þetta kollegi, meira en rétt að vita hvar klósettin, eldhúsið og sturturnar eru. Og þá á ég við að læra á þvottavélar, hvar maður nær sér í þvottavélaklink, öll lykilorð og allt sem nauðsynlegt er að vita.
Svo ætlum við ógiftu að fara út til Roskilde að tjalda og ná okkur í armbönd svo við getum farið að skemmta okkur þar þegar líður á vikuna! Sem verður gaman gaman
Jæja þetta verður ekki lengra í bili. Knúsar og kossar frá DANMÖRKU til allra sem nenna að lesa ![]()
HD og Lalli
Síðasta bloggið….
Saturday, June 25th, 2005….á íslandi í bili!
já, við erum að bera töskur út í bíl. það er komið að brottför. Óneitanlega hnútur í maganum núna!!
Við hjónin biðjum að heilsa öllum sem við náðum ekki að hitta fyrir brottför og minnum á að hér verður alltaf eitthvað spennandi að sjá með reglulegu millibili!!! komið svo fljótlega í heimsókn (já líka þú, þarna letihaugurinn þinn!!!) og ekkert væl!!!
Takk fyrir allar gjafir og hlýhug og Verzlunarmannafélag Reykjavíkur fær sérstakar yndis-heiðursþakkir fyrir að gera okkur kleift að njóta ánægjulegrar kvöldstundar á Skólabrú með vinum okkar.
Bless í bili, næsta blogg verður frá DANMÖRKU!!!!!
kveðja,
Lalli og HD
Það er ekkert annað!
Thursday, June 23rd, 2005Maður má ekki bregða sér af bæ þá eru foreldrarnir bara búnir að festa kaup á raðhúsi. 250 fm húsi á 3 hæðum. Ok ég er ekki alveg búin að bregða mér af bæ en samasem komin með nánast allan búkinn ofan í kassa! Voða lítið eftir. En ég vill sem sagt formlega óska foreldrum mínum til hamingju með húsakaupin. Verst að vera að stinga af landi brott þegar þið þurfið á manni að halda og ég ber inn fleiri og fleiri kassa til þeirra sem þau þurfa að flytja :Þ
En ég sit hérna hálf andlaus, sný mér í hringi reglulega og veit ekki hverju ég á að pakka næst – eða varla hvað er eftir og það sem er eftir hvað ég á að gera við það!! Er að þrjóskast við að taka EKKI stærri tösku með – frekar að hafa þessa minni – henda bara meira drasli. Já jæja ekki meiri biturleiki í bili þýðir ekkert að væla yfir þessu – maður verður bara að gera eitthvað í þessu – ekki skríður dótið sjálft ofaní tösku!
Ég held að maður verði að skella sér í Danska kúrinn eftir öll þessi matarboð og veislur. Ég er nota bene ekki að kvarta – það er alltaf gott og gaman að borða góðan mat með góðu fólki
en sennilega verðum við ekki svöng fyrr en einhvern tímann í haust – sem ég held að sé góðs viti fyrir okkur bæði… okkur veitir ekkert af að fara að nota forðann – maður á ekki bara að safna…..
Svona til að halda áfram með matarumræður þá er kveðjuhóf í kveld hjá Þorbjörgu og Berglindi systur hennar – gaman gaman – langt síðan ég hitti þær systur saman. Svo það er allt að gerast!
En ég segi bæ í bili HD
Alltaf hefur maður tíma….
Wednesday, June 22nd, 2005……fyrir bull eins og þetta!
Dagarnir líða hratt – en það má samt ekki segja annað en að dagarnir séu notaðir nokkuð vel. Það er sko þétt dagsskrá. Td var dagurinn í dag hjá mér HD: heimsókn til Jóhönnu Maríu (SMiG-sys) fyrir hádegi, um hádegi skunduðum við ógiftu með Ástu Sigrúnu í sund og Herði og Ástu Kristínu. Kenna lil sys (ÁSM) að fara með litlu frændsystkinin sín í sund – einhver verður að viðra drenginn!! Hann ELSKAR SUND. Hugsa að það verði verst fyrir hann þegar stóra systir (HD) er ekki alltaf að hugsa til hans þegar hún fer í sund sem hún gerir svo oft! Já beint var haldið niður í bæ, nánar tiltekið Austurvöll að hitta Birki og nýju kærustuna hans Ómars, Marcy(Ómar var reyndar að þvo þvottinn sinn) sátum þar og hittum ótrúlega marga sem við þekktum m.a Ívar og Stebba. Þá var ekki hægt að flýja vandamálið ennþá – svo við fórum heim að pakka!! Get eiginlega ekki sagt annað en að við séum búin að vera dugleg. Sem betur fer! En rosalega er þetta leiðinlegt verð ég að segja. Innansleikjurnar (eins og mammans Lalla kallar það) eru hræðilegar. En nú er hægt að segja að maður sé farinn að sjá fyrir endann á þessu. Lalli og Halldór plöstuðu og pökkuðu öðru brettinu áðan svo nú er bara að raða á hitt!
Nú förum við á Skólabrú í boði VR (Lalli fékk það í kveðjugjöf frá þeim) og svo vonandi bara að sofa. Vona að nóttin verði ekki jafn lítið sofin eins og síðasta. Veit ekki hvort þetta er stress eða hvað, en ég var alltaf að vakna og bilta mér og gat ekki sofnað! En svona er þetta! Hlýt að sofa betur næstu nótt.
Bæ í bili.
HD