Í dag urðu þáttaskil hjá einum litlum Lalla. Það má eiginlega segja að flutningur til Danmerkur hafi færst nær um nokkra kílómetra! Já, í dag skilaði ég af mér netkerfum Verzlunarmannafélags Reykjavíkur og Siglingastofnunar Íslands til Hleiðars vinnufélaga í ANZA og lauk þar með 3ja ára viðveru minni á þessum stöðum. Auk þess datt talan niður um einn tug (svo að segja) þegar flutningadagsetningin fór úr 30 og eitthvað daga fjarlægð í 20 og eitthvað daga! Shit, magaverkur og spenningskrampi!!
Ég hef endurvakið umsóknaræðið ógurlega sem greip mig í janúar síðastliðnum og er búinn að sækja um 5 vinnur á 2 dögum
Nema núna er alvaran komin í spilið! Ég hef s.s. ákveðið að taka ekki vinnuni sem ég nældi mér í í febrúar, heldur láta “drauminn” rætast og reyna að fá útflutningsbílstjóradjobb eða einhverja aðra úti-keyrsluvinnu…. nenni ekki að vinna á nóttuni á lyftara (ekki nema ég fái -ekkert- annað að gera).
Við hjónin erum líka komin með nýjar email-addressur sem verða allsráðandi í samskiptum við okkur næstu misserin. Ég (Lárus) er með Lalli@slepja.com og Helga Dröfn fær HD@slepja.com. Út detta því eftirfarandi addressur: sural@simnet.is larus@anza.is anza@vr.is. Við munum áfram nota hotmail addressurnar okkar líka.
Jæja, ekkert hangs! Ætla útá pall að grilla dautt lamb! Kartöflurnar að verða reddí og svona, kominn tími á þetta
later alles….