Archive for the ‘Fréttir og tilkynningar’ Category

Lotta í Ólátagarði

Friday, January 27th, 2006

Fréttir, Helga Dröfn les:

Eins og flestir lesendur vita þá er ALDREI lognmolla í kringum okkur hjúin. Jafnvel þó við séum stödd í sitthvoru landinu og ættum að liggja upp í rúmi með bangsana okkar snúa okkur út í horn og gráta af söknuði, talandi við hvort annað 24/7 og segjast sakna hvors annars svo mikið. Jahh okey við auðvitað söknum hvors annars – annað væri nú ekki hægt… en eins og ég segi þá er alltaf hvirfilvindur í kringum okkur og því höfum við hjú keypt okkur íbúð. 98 fm íbúð í Seljahverfi á 1 hæð með stóru stæði í bílskýli. Flytjum inn í síðasta lagi þann 1. apríl og það verður ekki gabb – ég lofa. Svo eftir 1. apríl verðið þið velkomin í heimsókn öllsömul – pottþétt pláss fyrir alla :þ

Það var ekki fleira að sinni. Fréttum er lokið.

Home sweet home

Monday, January 9th, 2006

Kæru vinir, ættingjar og aðrir lesendur. Ég hef fréttir að færa.

Ég ætla að flytja mig og allt dótið heim aftur í mars/apríl. Stefni á flutning einhverstaðar milli 15. mars til mánaðarmóta. Ekki alveg planað. Já þetta er, eins og nánast allt sem við höfum upplifað frá 25. júní 2005, mjög ólíkt upphaflegum plönum.

Ástæðurnar sem ég gef fyrir þessari ákvörðun minni eru nokkrar og vega 3 þeirra mjög mikið í þessari ákvörðun hjá mér og jafnvel þyngra en þetta nám sem ég var búin að finna og hlakka svo mikið til að læra. Ástæðurnar eru ekki settar upp í þeirri röð sem þær vega því allar vega þær þungt og álíka mikið.
1) Jú, ekki hægt að neita því að tilhugsunin um fjarbúð í 3 ár er ekki sérlega spennandi. 1 ár væri ekkert mál og óþarfi að leiða hugann að því einu sinni. En 3 x það… æhhhh – KANNSKI ef það væru ekki fleiri ástæður fyrir þesssu. En mig langar ekki að vera í flugheimsóknarsambandi í allan þennan tíma.
2) Fjármálin, það að hafa verið atvinnulaus allan þennan tíma og þó ég hafi verið að vinna síðustu 2 mánuði þá er það ekki nóg til að borga upp allan atvinnuleysistímann og lystisemdanna sem við höfum leyft okkur síðustu mánuði. Að koma svo heim eftir 3 ár og standa á sama stað og núna – þurfa að byrja á að skrimta þá og maður veit aldrei hvernig aðstæður verða á markaðnum heima og allt það! Betra að drífa í þessu núna – rembast við að kaupa íbúð sem allra fyrst og koma sér fyrir loksins og vonandi þannig að maður geti búið þar og komið sér fyrir.
3) heimilið-festan, það sem ég talaði um hérna að framan og auk þess er maður bara kominn á þann aldur að maður vill fara að koma sér fyrir, hætta þessu líferni í pappakössum og ferðatöskum, allt of þröngu rými og endalausum flutningum.

Sem sagt er ég á leiðinni heim og eiginlega verð ég að játa að ég er ótrúlega sátt við þá ákvörðun. Sáttari en ég hefði nokkurntímann getað ímyndað mér að ég gæti orðið.
Ég er amk búin að prufa að búa í útlöndum, vinna þar og veit að þetta er hægt og minna mál en ég átti von á. Búin að svala útþránni í bili amk.
Svo að nú þarf ég fara að skoða vinnustaði og allir sem vita um einhverja aðstöðu fyrir mig endilega látið vita :) híhíhí.

Hlakka til að hitta ykkur öll í mars/apríl. Nánari dagsetning kemur síðar.
Helga Dröfn – svíslendingur :)

P.s afmæliskveðjur til Ragnheiðar litlu sem er 1 árs í dag og til Freyju Fannar sem var 1 árs á laugardaginn. Knúsar og kossar til ykkar litlu skvísur

Síðasti erfingi ársins!

Friday, December 30th, 2005

Já fyrsta barnið í þessari annars barnatörn næstu mánaða er fætt. Storkurinn reyndar hefur greinilega lent í meðvindi því litla stúlkan átti ekki að koma fyrr en í janúar á nýju ári. En hver kvartar?? Ekki ég. Verst er að litla krúsínan er stödd í Kaupmannahöfn svo ég sé hana ekki strax. En mikið hlakka ég til að fá að sjá hana. Og svona fyrir ykkur sem þekkið eitthvað til þá var hún Steingerður stóra frænka og Mikael að eignast sitt fyrsta barn. Til hamingju kæra fjölskylda *kyss og knús* til ykkar allra. Hlakka til að sjá ykkur sem allra fyrst og gangi ykkur vel með telpuna.

Breytt áætlun

Tuesday, December 27th, 2005

Sæl veriði kæru lesendur til sjávar og sveita, nær og fjær.. þó aðallega fjær.

Já, breyttar aðstæður (eða ætti ég að segja óbreyttar) kalla á breytta hegðan og önnur plön. Margt hefur skeð hérna úti á síðustu dögum, ýmislegt misjafnt komið í ljós og annað sem var slæmt er óbreytt. Tími til kominn að gera gagngerar breytingar á planinu, vinna í að snúa dæminu við.

Ég, Lárus Rafn Halldórsson, er á heimleið.

Þetta er ekki það sem upphaflega var í ferðalýsingu sem samin var í febrúar 2005. En svona er lífið og enginn gat vitað að það yrði ómögulegt að fá vinnu hérna. En nú er maður eldri, reyndari og sterkari einstaklingur :) . Já.. þetta er sannarlega búinn að vera góður tími, erfiður í bland samt.

Til að gera langa sögu stutta skal stiklað á stóru í atburðarrásinni, sem í senn er spennuþrungin, ógnvekjandi og sorgleg. Eins og glöggir áhangendur hafa tekið eftir hef ég unnið undanfarið hjá Berglunds Åkeri hér í bæ. Þetta byrjaði allt með því að ég fékk viku reynslutíma hjá þeim snemma í haust. Voru þeir þá að eigin sögn talsvert ánægðir með mig en höfðu þá “tyvärr” (því miður) enga vinnu fyrir mig eftir vikuna. Fékk ég samt góð meðmæli og fannst þá þetta fyrirtæki alveg hreint ágætis kompaný.

Síðan fékk ég smá aukavinnu hjá þeim öðru hvoru, reyting hér og reyting þar, keyra aukakeyrslur og smotterí. Svo kemur að því að ég fæ að vita að hugsanlega sé laus staða hjá þeim. EN! þeir vilja ekki ráða mig beint inn á þeirri forsendu að ég sé nú ekki alltof ratvís í Eskilstuna og vilja fá aðstoð frá ríkinu í 4 vikur til að standa straum af þjálfun minni. Þetta er í boði vegna gríðarlegs atvinnuleysis í Svíþjóð, einn liður stjórnvalda til að auðvelda fólki að fá vinnu. Ég skildi aldrei alveg af hverju ég þyrfti 4 vikur til að læra að rata um 90 þúsundmanna þorp, enda kann ég ágætlega að lesa kort og hef leyst öll verkefni sem Berglunds hefur boðið mér vandræðalaust. (þar fyrir utan á ég prýðilegt GPS með götu-korti og leitunarmöguleika, en það er önnur saga)

Jæja, þetta er sett af stað og ég byrja að vinna 28. nóvember. Þá kemur í ljós að þetta er vinna á lager DHL hér í bæ við að hlaða í flutningabíla á kvöldin, tek ég við af manni sem var rekinn fyrir leti frá öðru fyrirtæki (ekki Berglunds) og á þetta starf ekkert sameiginlegt með útkeyrslu á vörum, hvað þá að um sé að ræða einhverja þjálfun í ratvísi, nú eða þjálfun af einhverju tagi. Ég fylgist með stráknum sem búið er að reka vinna vinnuna sína í 2 kvöld, og svo tek ég við. Ég vinn þarna í 4 tíma á kvöldin og held ég standi mig bara ágætlega, enda kom seinna í ljós að DHL menn voru mjög ánægðir með mig.

Kjarninn í þessum þjálfunarsamningi milli Berglunds og ríkisins er sá að Berglunds þarf ekki að borga mér laun meðan ég er í þjálfun, ég fæ skitnar 120 krónur sænskar á dag frá ríkinu á þessum tíma óháð því hvort ég sé að vinna 1 tíma á dag eða 10. En samningurinn gerir líka ráð fyrir því að ég sé í -þjálfun- og það sé einhver að vinna með mér eða amk. fylgjast með því sem ég er að gera!!! svo var ekki þarna.

Á þorláksmessukvöld, þegar ég er að vinna síðasta daginn minn skv. þessu “þjálfunarprógrami” þá spyr ég yfirmann DHL lagersins hvernig þetta verði í framhaldinu, hvort ég fái meiri vinnu eftir þetta prógram og hver borgi mér laun og svo framvegis. Hann kemur af fjöllum og segir mér að ég sé leigður af Berglunds til DHL á fullu kaupi (s.s. Berglunds fær að fullu greitt fyrir mína vinnu) og þeir hafi ekki heyrt um neitt að ég sé í þjálfun. (þess má geta að ég spurði að þessu þarna því mig var farið að gruna að þetta væri eitthvað gruggugt).

Semsagt, þá ætlaði Berglunds Åkeri sér aldrei að ráða mig í vinnu, heldur átti bara að nota mig sem ókeypis vinnuafl í þessar 4 vikur svo þeir gætu hirt leiguna af mér frá DHL og stungið henni í eigin vasa og segja mér svo að ég gæti því miður ekki fengið neina vinnu. Fallegt svona í desember.

Aníhú. Ég er s.s. búinn að fara um bæinn í dag, ná í staðfestingu þess efnis að DHL hafi greitt fullt gjald fyrir mig til Berglunds og svona og svo fór ég á fund hjá AMS, sem er Sænska vinnumálastofnunin og kærði þá. Þetta athæfi er náttúrulega ólöglegt, fyrir utan að vera siðlaust. Enn á ný er ég því algerlega atvinnulaus í Svíaríki og ekki nein önnur vinna í sjónmáli.

Þetta þýðir því að ég kem heim til Íslands í janúar að vinna, enda höfum við ekki efni á því að ég sé lengur hér úti að leita að vinnu sem virðist hvort eð er vera næstum vonlaust. Planið er að ég vinni heima á íslandi, búi ódýrt og haldi okkur uppi svona í sitthvoru landinu. Leiðinlegt en gengur alveg. Verst er að vera svona lengi í einu í sundur, það verður erfitt :(

Svona fór um sjóferð þá. Við sjáumst s.s. fljótlega uppúr 8. jan, en þá á ég pantað flug heim.

Jólakveðja,
Lárus

Stoltasta systirin í öllum heiminum

Monday, December 12th, 2005

Ég veit að ég get fullyrt að ég er sú allra stoltasta systir sem finnst í öllum heiminum akkúrat núna. Ekki það að ég er aldrei neitt nema stolt af þessum systkinum mínum. En sem sagt hann Kristján litli, en samt svo stóri, bróðir minn var tilnefndur til að fara á Special Olympics í Róm í september á komandi ári.
Vá þvílíkt spennandi maður. ÚFfff…

Ég bara VARÐ að deila þessu með ykkur kæru vinir svo þið getið verið stolt með mér. Ef ég gæti brosað allan hringinn þá myndi ég gera það akkúrat núna. Ég er algjörlega að rifna.