Archive for the ‘Baunir’ Category

Haustið

Friday, September 3rd, 2010

Mér finnst þessi tími jafn æðislegur og allar hinar árstíðirnar. Haustið er allt svolítið kósý þegar það fer að dimma á kvöldin (ekki jafn gaman þegar morgnarnir verða dimmir samt), gróðurinn breytir um lit, það verður svona “innipúkaveður” þar sem maður “á” að vera heima að kúra í­ sófanum með teppi og kertaljós og einmitt lampar og kerti verða hluti af dagsdaglegum hlutum í kringum mann. MMmmmm….

Rútínan er lí­ka eitt af því sem ég elska við haustin. Eins og maður er kominn með yfir sig nóg af rútínunni á vorin og finnst dásamlegt að losna úr henni, þá er jafn yndislegt að komast í­ hana (rútínuna) aftur. Ég er svoddan reglukona :) Vill gjarnan hafa allt skipulagt og á sínum stað :Þ (aumingja Lalli!!). Stundum jaðrar það við þráhyggju en… Ég reyni að passa mig hehee..

Ég er búin á 1 námskeiði eins og áður sagði og er byrjuð að undirbúa mig fyrir það næsta. Það verður aðeins lengra og strembnara og því lý­kur með prófi eftir miðjan nóv. Ég ræði það betur þegar ég er komin af stað með það.

Annars lofar þetta haust góðu, mikið um að vera, nú þegar ansi mörg plön komin fyrir helgar og virka daga og nýtt skipulag/dagskrá farin af stað hjá mér á vikulegum basis. Mjög gott og mjög gaman.
Jólin eru að byrja að taka sér bólfestu í­ höfðinu á mér. Er að byrja andlegan undirbúning fyrir gjafainnkaup og þessháttar, enda ekki seinna vænna að fara að skipuleggja…. Eins og einhver sagði “það er kominn mánuður með “ber”" (s.s septemBER!) og já þá eru jólin að bresta á.
Ég er líka búin að vera svo dugleg að föndra við jólahitt og þetta síðan… eiginlega síðan í janúar, svo það verður gaman að halda jólin með meira af mínu eigin glænýja jóladóti :) Reyndar eru nánast búin að vera jól síðan síðustu jól því þetta handavinnudót er útum allt og uppum allt. Ætti eiginlega að drífa í að pakka því svo ég verði ekki komin með nóg af þessu um næstu jól!! :)

Nóg af þessu í bili, góða helgi

Fyrsta námskeið haustsins

Sunday, August 15th, 2010

Ég talaði um það í færslu hérna neðar (frá í vor einhvern tímann) að ég ætlaði að skella mér á böns af námskeiðum í vetur :)

Á morgun byrjar það fyrsta. Þá ætla ég að fara á námskeið hjá ljósmyndari.is og læra á myndavélina mína sem ég er búin að vera að taka myndir á síðan í fyrravetur. Á myndavélina sem ég fæ/fékk í afmælisgjöf í október n.k :) 3ja daga námskeið, frá 18 – 22. Ég hlýt nú að læra eitthvað af því. Afraksturinn ætti að sjást eftir næstu viku, þegar skemmtileg ljósmyndatækifæri gefast.

Víí .. er farin að hlakka soldið mikið til. Svo gaman að læra eitthvað nýtt og skemmtilegt.

UPDATE!
19. ágúst 2010
2 kvöld búin – 1 eftir. Ótrúlega gaman, en óboy, eftir fyrsta kvöldið var ég búin að heyra talað svo mikið um ljósop – hraða – ISO – ofl ofl að orðin og þekkingin flæddi útum eyrun á mér og ég mundi ekkert hvað var hvað! Fór allt í klessu. Tók samt krossa”próf” sem gaf mér það nú til kynna að eitthvað hefði síast inn. 14 af 17 rétt :) Reyndar var kl orðin rúmlega 22 þetta kvöld og margir sem þekkja mig vita að þá slokknar á heilanum í mér vanalega! Þýðir varla að spyrja mig hvað ég heiti eða hvernig himininn sé á litinn!! En það var ekki alvarlegra en þetta – sem betur fer!.

Ég er s.s búin að læra hvað býr á bakvið þessi orð sem maður hefur heyrt svo ótrúlega mikið um, en aldrei skilið. Ég er þó svo mjög fjarri því að vera snillingur og vinsamlegast ekki spyrja mig útí þetta alveg strax hehehe.. nú á ég eftir að fara út og æfa mig, prufa mig áfram, læra að setja allar þessar stillingar saman og fikta í öllum þessum tökkum sem “voru óþarfir” áður. Hrikalega gaman.
Mig grunaði reyndar ekki þegar ég skráði mig á þetta námskeið að það væri svona ýtarlegt. En ég er mjög ánægð með að hafa skellt mér af stað. Verður gaman að sjá hvort hægt verði að sjá mun á myndum hjá manni frá fortíð og til framtíðar! :) – Það ætti ekkert að vera erfitt, væri eiginlega alveg hræðilegt ef það sæist ekki talsverður munur thihihi..

En nú ætla ég út á svalir og sjá hvort ég hætti nú að svitna eftir 15 km hjólatúrinn minn úr vinnunni og heim í dag. Fer svo að skella mér á síðasta hlutann – photoshop! :)

Sumarfríið 2010 – stutt yfirlit

Friday, August 6th, 2010

Kjölur – Sprengisandur og strandlengjan frá Hvammstanga og austur á Vopnafjörð.

Við lögðum af stað frá Reykjavík og keyrðum Kjöl í einni beit norður. Stoppuðum þó í nokkra stund bæði í Kerlingafjöllum og á Hveravöllum.

Enda veðrið fallegt þó ekki væri glampandi sól (sem við viljum ekki þegar við erum á svona keyrslu!) Gistum svo á Blönduósi fyrstu nóttina. Þar var alveg ofsalega fallegt sólarlagið um kvöldið

Ég mæli þó ekkert sérstaklega með tjaldsvæðinu á Blönduósi. Það er ömurlegt að vera þarna við þjóðveg 1 og gæsaskíturinn þarna er viðbjóður. Annars er öll aðstaða þar fín.

Að morgni næsta dags lá leið okkar á Hvammstanga, því við höfðum ákveðið að fara strandlengjuna þaðan og austur. Vatnsnesið var skemmtilegt að sjá, en ég var hissa að sjá að fæstir bóndabæir þar eru merktir með nafni. Því var hálf erfitt að fylgjast með á korti hvar við værum og lesa okkur til í Íslandshandbókinni (sem er nauðsynlegur ferðafélagi). Það sem stóð líklega uppúr á Vatnsnesinu er Borgarvirkið sem maður er búin að horfa óteljandi oft á úr fjarlægð, en loksins erum við búin að sjá það með eigin augum í nærmynd. (sjá gallerý)
Svo keyrðum við á Skaga líka, sem og Tröllaskaga. Skoðuðum Grettislaug á Reykjum og rétt sáum út í Drangey þaðan, rétt nóg til að ímynda okkur ferðina hans Grettis sterka út í Drangey og til baka…. brrr…. Drangey og regnboginn :)

Síldarævintýrið á Sigló var í startholunum þegar við komum og ferðahýsi af ýmsum toga útum allan bæ. Stoppuðum nú ekki lengi þar, bara rétt til að kanna hvort það væri nokkuð hægt að keyra í gegnum Héðinsfjarðargöngin og sjá bæjarbraginn. Enda orðið ansi langt síðan undirrituð koma á Sigló.
Kíktum einnig á Ein með öllu á Akureyri og heimsóttum Dr. Dagbjörtu sem er í sumarvinnu á Akureyri. Það var voða gaman að hitta hana á núverandi heimaslóðum :)

2 toppar ferðarinnar voru án efa Fjörður og Flateyjardalur.
Það er fáfarnir staðir – til þess að gera. Enda jeppaslóðar á báðum stöðum og löng keyrsla á misgóðum vegum sérstaklega inn í Flateyjardal.
Flatey á Skjálfanda

En óboy þetta eru fallegir staðir að heimsækja.
Við gistum óvænt í skála í Fjörður (heitir réttu nafni Hvalvatnsfjörður, en í daglegu tali heitir hann Fjörður) Við vorum svo heppin að þegar við keyrðum inn í Fjörður var þetta miður skemmtilega skýjafar svo við hugsuðum með okkur að við gætum þó amk sagst hafa farið þangað. En svo af því að við vorum svo seint á ferð þá ákváðum við að gista í Gili – skálanum. Þegar við vöknuðum morguninn eftir sátum við úti í sól og horfðum á fjöllin rífa af sér skýjahuluna. Það var æðislegt að fá að sjá fjörðinn í sínu rétta ljósi :)

Lalli að fara yfir nýju brúnna í Illagili í Fjörður

Við fórum svo Tjörnesið og Melrakkasléttuna alla leið austur á Raufarhöfn (krummaskuð!). Þar voru foreldrar mínir með hús á leigu og við gistum hjá þeim í 3 nætur. Á meðan á þeirri dvöl stóð fórum við út á Font á Langanesi (í þoku) og á Vopnafjörð og m.a í Selárdalslaug. Létum það nægja, enda erum við hjónin þá búin að “loka hringnum”. Við erum búin að eiga 2 góð sumarfrí á austfjörðum og náðum í annað skiptið að fara alla leið á Vopnafjörð. Við erum búin að taka Vestfirðina og Snæfellsnesið sem og Sprengisand og Kjöl (í sumar). En það þýðir ekki að við séum BÚIN með landið. Svo sannarlega ekki. Við erum rétt að byrja og getum varla beðið eftir næsta sumarfríi með þeim ævintýrum sem það mun hafa upp á að bjóða.

Ég er nú bara búin að stikla á stóru eftir þessa vikuferð okkar. Ferðasöguna má sjá í myndum á gallerýinu okkar. Það er undir “lengri ferðalög” og ath, það er á bls 2.
Myndir má einnig finna hér

Skorradalur – Selskógur

Saturday, July 17th, 2010

Frábært tjaldsvæði. Reyndar ekkert voðalega flatt fyrir tjöld, en ég held að tjaldsvæði í dag séu yfirhöfuð ekkert sérstaklega slétt. Allir alltaf að keyra inn á þau og parkera þungum vögnum af ýmsu tagi.

En anyways ef þig vantar hugmyndir að tjaldsvæði þá mæli ég með þessu svæði. Snyrtilegt og fínt. Það var bongósól EN reyndar var hvasst.. En Skorradalurinn er ofsalega fallegt svæði og náttúrulega bara svo örstutt frá Rvk. Við gáfumst reyndar upp á rokinu og ákváðum að drífa okkur heim í kotið og sólina mínus rok í bænum! :) Gistum s.s bara 1 nótt. En það var líka alveg dásamlegt.
Vorum í félagsskap með Dabba, Dísu, börnum og fleirum. Þó nokkur fjöldi saman komin í kringum þau :) Bara gaman!

Er að vinna í myndum þaðan. Læt vita þegar þær koma inn.

Nóttin

Sunday, July 4th, 2010

Við gömlu hjónin fórum snemma að sofa eftir langan keyrsludag og svefnminni nóttina þar á undan. Við fórum í bælið 23:40 (kannski ekkert rosa snemma samt) og ætluðum að rotast með det samme.
Kl 00:00 pípti farsíminn minn frammi – áminning sem átti að koma 14 klst fyrr… Og við vorum einmitt nýdottin út. Ég stökk fram að slökkva á þessum óhljóðum. Ég var rétt ný lögst aftur og farin að festa blund þegar heimasíminn hringdi. Það gerist nú ALDREI, svo ég stökk á fætur, skíthrædd um slæmar fréttir í símann… En nei, þá var bara partýhljóð á bakvið mig og augljóslega sími einhvers sem vissi ekki að hann/hún væri að hringja út í bláinn. S.s ég heyrði bara í fólki og tónlist þessar sekúndur sem ég nennti að hlusta. Svo ég lagði á og sá að þetta var númer sem ég kannaðist ekki við. Þegar ég er rétt nýlögst aftur kemur önnur hringing í heimasímann, en þá var það bara 1 stutt og svo ekki meir.
Sem betur fer var þetta ekki fyrirboði um nóttina, því ég svaf síðan á mínu græna til kl 7 þegar ró minni var raskað aftur og ég heyrði einhvern útlending syngja hástöfum fyrir utan garðinn hjá mér. Eftir 5-10 mín ákvað ég að standa upp og sjá hvað væri í gangi. Þá var ráfandi grey syngjandi beint fyrir utan garðinn, snéri sér að húsinu okkar og söng á einhverju máli sem ég veit ekki hvað var. En Lalli sagði að hann hefði verið að syngja um “Kurva” sem hann vildi meina að væri “hóra” eða eitthvað slíkt á Pólsku… Slæm nótt hjá þessum dúd greinilega að baki.
Það er nefnilega smá galli á gjöf njarðar, hérna bakvið hús hjá okkur er heilmikið leiksvæði, stór grasbali og rólur, kastali ofl leikföng. Þar bergmálar alveg hræðilega og sérstaklega á nóttunni þegar minnst er um að vera. Þá heyrist allt alveg ROSALEGA vel og mikið. Frekar pirrandi þegar fólk er með drykkjulæti að rölta hjá. Það gerist samt sem betur fer ekki um hverja helgi!