March 9th, 2010
og það var alveg dásamlegt. Engin stórkostleg plön, boðið í bröns á sunnudag (m.ö.o ég þurfti ekki að hugsa um mat á sunnudag fyrr en um kvöldið – jíha!)
Lalli fór í smá jeppaferð í leit að snjó á sunnudaginn. Gekk nú ekki svo vel, ekki svo mikill snjór á hálendinu. En fékk smá jeppatúr út úr þessu samt.
Ég var að klára Stieg Larson tríólógíuna. Hroðalega eru þetta góðar bækur. Jiminn, ég var við það að taka mér frí í vinnunni suma dagana. Horfðum svo saman hjónin á mynd númer 2 – Stúlkan sem lék sér að eldinum – í gærkvöldi. Hmmm við skiljum eiginlega hvorugt hvernig fólk sem ekki hefur lesið bækurnar, skilur myndirnar. Bók vs mynd er bara svooo ólíkt að hægt er eiginlega að segja að þetta sé sitthvor sagan byggð á sömu hugmynd. Og ég geri mér fulla grein fyrir að það er ekki nokkur leið að koma 600 bls bók í 2ja klst mynd. No way. Ekki nema verið sé að teygja lopann eitthvað á hverri blaðsíðu sem er alls ekki í þessum bókum. Þær eru reyndar allar frekar hægar í fyrrihlutanum. Ekki langlokur beint, en margar persónur og miklar flækjur. En þær hafa allar tilgang í sögunni.
En ég hvet alla sem hafa gaman af myndunum að lesa bækurnar, núna eða seinna. Just do it!
Annars er það bara same as ususal. Vinna-borða-sofa rútínan hér. More later…
Posted in Baunir | No Comments »
February 28th, 2010
svo langt síðan ég loggaði mig hingað inn að ég þurfti aðeins að hugsa hvert lykilorðið var…
Frá því síðast þá höfum við farið 2x í sumarbústað
Fórum í heila viku í lok jan og fram í byrjun feb. Vorum bara tvö í síðbúnunu “sumarfríi”. Kíktum til fjölskyldunnar hans Lalla sem var akkúrat sömu helgi í bústað í Steingrímsstöð á laugardeginum og áttum þar fínan dag með þeim. Annars var bara lesið, saumað, hangsað, keyrt og haft huggulegt eins og maður gerir í bústað!
Þessa helgina fórum við í árlega jeppaferð með Dabba&Dísu og Oddi&Lúllu auk þriggja dætra þeirra. Þetta var alveg frábært, frábær félagsskapur, MJÖG MIKIÐ borðað, spilað, smá jeppatúr og notalegheit. Borðuðum svo aðeins meira HAHAHAHA..
Ég klúðraði samt myndatökum úr jeppaferðinni… Gleymdi að taka vélina með. En er með myndir af heimferðinni. Það var ansi þungt færi á Mosfellsheiðinni… En Lyngdalsheiðin / Gjábakkavegurinn var sama sem auður, fyrir utan stöku skafla hér og þar… Keyrðum inn að Vörðu / Bragabót áleiðis upp að Skjaldbreið.. þar var ekkert… Allt fokið í bæinn
Annars fátt að frétta, vinna-borða-sofa ástand á þessum bæ. En bústaðaferðirnar hafa aðeins hrist upp í annars fábrotnu lífi okkar hjóna
Allt s.s gott að frétta héðan, hafi einhver verið farinn að undra um okkur!
Myndir verða auglýstar síðar!
Posted in Baunir | 3 Comments »
January 17th, 2010

Hvar er þessi mynd tekin?
Posted in Baunir | 4 Comments »
January 15th, 2010
Þetta ár ætlar að fara hratt af stað, janúar er hálfnaður – hafi það farið framhjá einhverjum hér!
Fáar fréttir af okkur svo sem. Lalli vinnumaður vinnur út í eitt þessa dagana og vikurnar. Ef hann er ekki í þessari hefðbundnu 8-4 vinnu, þá vinnur hann yfirvinnu þar aðallega um helgar en einhver kvöld hafa farið í það líka. Þegar hann á tíma frá þeirri vinnu þá er hjólhýsasmíðin á fullu.
Ég er hinsvegar farin að undirbúa næstu jól… eða þannig hehehee.. Aníta og Sólrún saumakonur skelltu á alvöru saumaklúbb, þar er lítið skrafað og slúðrað (ennþá amk) því við óvönu (ég og Aníta) erum svo einbeittar að við getum eiginlega ekkert annað gert en að sauma. Amk bara annaðhvort sauma EÐA tala!
En þetta gæti verið komið fyrir næstu jól! Við erum s.s að sauma jóladúka undir jólatréð og jólapóst (ég ákvað að hita mig upp með auðveldara stykki
) Svo er bara spurning hvort þessi góði fyrirvari dugi hehehehhee…
Annars allt við það sama hjá okkur. Avatar í kvöld, já rosa menningaleg 
Góða helgi
Posted in Baunir | 2 Comments »
January 6th, 2010

Þá skrapp ég í smá bíltúr með foreldrum og flestum systkinunum í skííítakulda en yndislega fallegu veðri. Alveg meiriháttar. Við fórum hinn hefðbundna túristahring “the golden circle” – alltaf jafn flott og að sumri til, ekki síður í klakaböndum, heiðskýru og miklu frosti.
Myndir má finna Hér
Posted in Baunir | No Comments »